Þórduna | Nemendafélag VMA

22.04.2008 1. ALMENN ÁKVÆÐI 1.1. Félagið heitir Þórduna. Lögheimili þess og varnarþing er í Verkmenntaskólanum á Akureyri, við Hringteig 2. 1.2.

Lög nemendafélagsins ÞÓRDUNU

22.04.2008

1. ALMENN ÁKVÆÐI

1.1. Félagið heitir Þórduna. Lögheimili þess og varnarþing er í Verkmenntaskólanum á Akureyri, við Hringteig 2.

1.2. Markmið félagsins eru:

a) Að vera málsvari nemenda út á við og gagnvart skólayfirvöldum.

b) Að stuðla að fjölbreyttu félagslífi í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

2. UM RÉTTINDI OG SKYLDUR FÉLAGSMANNA

2.1. Félagar eru allir þeir sem borga aðildargjöld og stunda nám við Verkmenntaskólann á Akureyri.

2.2. Félagsmenn skulu greiða ákveðið gjald í upphafi hverrar annar sem samþykkt er af skólanefnd.

2.3. Allir skráðir félagsmenn eiga rétt á eftirfarandi: Kjörgengi í trúnaðar –og stjórnunarstöður félagsins (sjá þó liði 3.4.1-3.4.7 og 3.17), atkvæðisrétt í kosningum félagsins, atkvæðis- og tillögurétt á aðalfundum félagsins ásamt lagabreytingafundi.

2.4. Allir félagsmenn skulu lúta settum lögum félagsins og fundarsamþykktum.

2.5. Félagsmaður hefur fyrirgert rétti sínum til aðildar að Þórdunu ef hann brýtur lög félagsins og/eða samþykktir þess eða kýs að skrá sig úr félaginu.

2.6. Félagsmenn hafa þáttökurétt á öll mót, keppnir, fundarhöld og skemmtanir sem félagið stendur fyrir. Félagsmenn skulu alla jafna njóta sérkjara þegar kemur að viðburðum á vegum Þórdunu.

3. NEMENDARÁÐ

3.1. Stjórn Þórdunu kallast Nemendaráð og er það kosið til eins árs í senn, í kosningum á vorönn.

3.2. Nemendaráð fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda.

3.3. Ráðið er skipað átta nemendum: formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara, skemmtanastjóra, tveimur hagsmunafulltrúum og eignastjóra.

3.4. Verkaskipting í nemendaráði skal í aðalatriðum vera eftirfarandi:

a) Formaður kemur fram sem fulltrúi nemenda utan skóla sem innan og situr fyrir hönd nemenda í skólanefnd. Einnig er hann fulltrúi skólans í samskiptum við nemendaráð annarra skóla sem og atkvæðisbær fulltrúi í hagsmunaráði. Formaður ásamt skólaráðsfulltrúa er áheyrnarfulltrúi nemenda í skólastjórn og skólanefnd. Formaður skal sitja sem formaður lagabreytinganefndar. Formaður skal vera ábyrgðarmaður í fjármálum og daglegum rekstri Þórdunu.

b) Varaformaður er staðgengill formanns, tengiliður milli nemendaráðs og félaga skólans. Hann er einnig formaður félagaráðs og sér um að kynna klúbba skólans í samráði við félagaráð. Varaformaður sinnir skyldum formanns í fjarveru hans. Forfallist formaður sinnir varaformaður starfinu þar til nýr formaður hefur verið kjörinn eða skipaður af stjórn Þórdunu. (sjá lið 3.5)

c) Ritari færir fundargerðir stjórnar, annast bréfaskriftir, skjalavörslu og hefur yfirumsjón með útgáfustarfsemi á vegum félagsins. Hann er tengiliður við ritnefnd sem sér um rekstur á heimasíðu Þórdunu og aðra útgáfustarfsemi á vegum félagsins. Árskýrsla um starf félagsins, sem kynnt er á aðalfundi, skal í höndum ritara og ritnefndar.

d) Gjaldkeri annast fjárreiður félagsins, bókhald, fjárvörslu og ávöxtun fjár. Hann skal búa yfir bókhaldsþekkingu. Gjaldkera ber að hafa bókhald félagsins klárt til samþykkis á aðalfundi á vorönn.

e) Skemmtanastjóri er formaður skemmtinefndar og hefur yfirumsjón með öllu skemmtanahaldi á vegum nemenda skólans og veitir árshátíðarnefnd forystu.

f) Eignastjóri er umsjónarmaður eigna og sér um tæki og tól í eigu Þórdunu, þar með talinn allur búnaður í Gryfjunni. Honum ber skylda til að halda eignaskrá Þórdunu og klúbba sem starfa innan veggja skólans, og hefur hann einn útláns- eða leigurétt á eignum félagsins. Hann er tengiliður tæknimanna við nemendaráð og skal hann aðstoða aðra í nemendaráði.

g) Kjörnir skulu tveir (2) fulltrúar í Hagsmunaráð í kosningum að vori, hvor af sinni brautinni.

3.4.7.1. Hagsmunaráð skal halda fundi einu sinni í mánuði eða oftar ef þurfa þykir og fjalla um þau mál sem efst eru á baugi hjá nemendum hverju sinni.

3.4.7.2. Fulltrúar í hagsmunaráði sitja einnig sem meðstjórnendur í stjórn Þórdunu.

3.5. Allir frambjóðendur í stöður í nemendaráði skulu hafa náð sjálfræðisaldri á kjördag, einnig skulu þeir geta sýnt fram á hreint sakavottorð. Þó er hægt undir vissum kringumstæðum að veita undanþágu frá sjálfræðisaldri sbr. gr. 3.18.

3.6. Reynt skal að tryggja eftir fremsta megni að í nemendaráði sé í það minnsta einn nemandi af einhverri verknámsbrauta skólans.

3.7. Forfallist fulltrúi í nemendaráði skal efnt til kosninga í viðkomandi embætti innan viku. (sjá lið 8.13.1)

3.8. Vanræki meðlimur ráðs/nefndar eða nemendaráðs skyldur sínar, geta nemendaráð og/eða félagsmálafulltrúar lýst á hann vantrausti ef þurfa þykir. Sá sem vantrauststillagan er sett fram gegn getur farið fram á að brottreksturinn verði borinn undir atkvæðagreiðslu til synjunar og hefur til þess tvo daga frá brottvikningu. Til að synjun teljist gild þarf 2/3 hluta atkvæða. Leggi nefndur aðili ekki fram beiðni þess efnis innan tveggja daga eða ef synjun er felld í kosningum stendur ákvörðun nemendaráðs og/eða félagsmálafulltrúa. Um eftirmann brottrekins aðila gildir liður 8.13.1 í tilviki nemendaráðs en sértækar reglugerðir um nefndir og ráð.

3.9. Nemendaráð boðar til almenns félagafundar eftir því sem þurfa þykir. Óski a.m.k. 10% Þórdunu-félaga eftir félagafundi er nemendaráði skylt að hafa hann innan viku tíma.

3.10. Nemendaráði ber að halda kynningarfund í upphafi hverrar annar þar sem stefnumál eru kynnt nemendum og helstu dagskrárliðir hverrar annar kynntir. Þessi fundur getur verið samfara nýnemafundi (sjá 3.14).

3.11. Nemendaráði er skylt að gefa út félagsskírteini á haustönn sem jafnframt gildir sem afsláttarkort.

3.12. Nemendaráði er skylt að gera aðgengilega símaskrá með númerum allra nemenda Verkmenntaskólans á Akureyri á haustönn.

3.13. Nemendaráði er skylt að halda veglega árshátíð á vorönn auk þess sem yfirumsjón með skipulagningu Opinna daga er í höndum þess. Þá er hin árlega Söngkeppni VMA einn fastra liða sem nemendaráði er skylt að sjá um á vorönn hverri.

3.14. Nemendráð skal halda úti virkri heimasíðu á vefsvæði nemendafélagsins, þar sem uppfærðar eru reglulega fréttir úr félagslífinu auk annars efnis sem við á.

3.15. Nemendaráð stendur fyrir nýnemafundi í annarri viku haustannar þar sem nýnemum er kynnt starfsemi nemendafélags auk félaga, nefnda, ráða og klúbba innan skólans. Þá fara einnig fram kosningar til nýnemaráðs. (sjá lið 4.9)

3.16. Nemendaráð skal kynna starfsemi sína og félagslíf VMA á grunnskólakynningum að vori.

3.17. Nemendaráði er skylt að skipa 5 manna kjörstjórn fimm vikum fyrir kosningar.

3.18. Frambjóðendur til stjórnar Þórdunu, get óskað eftir undanþágu frá reglum um sjálfræðisaldur á kjördegi sbr. gr. 3.5.. Þó eru embætti formanns og gjaldkera þar undanskilin. Skal þess þó krafist að nemandi nái sjálfræðisaldri fyrir eða á haustönn kjörtímabils.

4. RÁÐ OG NEFNDIR

4.1. Undir Þórdunu og nemendaráð heyra átta (8) aðrar nefndir og ráð.

4.2. Ráðum og nefndum innan skólans er óheimilt að stofna til skuldbindinga í nafni Þórdunu nema með samþykki nemendaráðs.

4.3. Félagaráð er tengiliður klúbba skólans við nemendaráð og er það skipað formönnum þeirra félaga/klúbba sem starfrækt/ir eru innan skólans.

4.3.1. Félagaráð skal hafa náið samstarf við Nemendaráð og funda með því einu sinni í mánuði.

4.3.2. Sérhver fulltrúi í félagaráði hefur rétt til þess að boða til fundar með tveggja daga fyrrivara.

4.4. Íþróttaráð skal kosið í byrjun hvers skólaárs og í því skulu sitja 5 fulltrúar, þar af einn formaður sem ráðið kýs sjálft að hausti. Formaður íþróttaráðs er tengiliður þess við nemendaráð.

4.4.1. Íþróttaráð skal sjá um skipulagningu allra stærri íþróttaviðburði á vegum nemenda skólans og sjá til þess að íþróttalíf sé virkt innan skólans.

4.4.2. Íþróttaráð sér um að velja skólalið þegar keppt er við aðra skóla.

4.5. Brautarráð skal kosið á hverri braut í byrjun skólaárs og skulu í því sitja hið minnsta þrír fulltrúar frá viðkomandi braut.

4.5.1. Brautarráð skal sjá um fundi, kvöldvökur, fyrirlestra og ferðir sem nemendur innan hverrar brautar koma sér saman um.

4.5.2. Brautarráð skal starfa líkt og klúbbar, þ.e. hafa sína eigin fjárhagsábyrgð og lúta Félagsmálafulltrúum í einu og öllu.

4.6. Kosið skal í ritnefnd á haustönn og skal hún starfa fram á vor og sjá um útgáfumál á vegum Þórdunu í samráði við nemendaráð, bæði á prenti og vefsíðu. Hverskyns auglýsingar og annað slíkt efni sem birta á innan skólans þarf samþykki ritnefndar. Ritari nemendaráðs skal vera formaður ritnefndar. Ritnefnd skal gefa út veglegt skólablað einu sinni á ári hið minnsta og annast útgáfu Jóns Krukks, fréttablaðs Þórdunu. Árskýrsla félagsins, sem birt er á aðalfundi, er einnig á höndum ritnefndar.

4.7. Kosið skal í skemmtinefnd á haustönn en formaður hennar skal ávallt vera sitjandi skemmtanastjóri. Fulltrúar nefndarinnar skulu aldrei vera færri en fimm. Skemmtinefnd hefur umsjón með öllum skemmtunum og ferðum (öðrum en íþróttaferðum) á vegum Þórdunu í samstarfi við nemendaráð.

4.8. Gettu Betur-og Morfís-nefnd (Quizmo) skal skipuð þjálfurum beggja liða ásamt þremur fulltrúum sem nemendaráð skipar. Einn þessara fulltrúa skal vera sitjandi meðlimur skemmtinefndar. Nefndin skal sjá um skipulagningu starfs og keppni beggja liða, þ.m.t. klappliða.

4.9. Ferðanefnd skal skipuð hvert ár að hausti. Ferðanefnd sér um rekstur sjoppu í skólanum auk annarrar fjáröflunar sem miðar að því að kosta nemendur til árlegrar utanlandsferðar að vori. Nefndin er sjálfstæð eining sem heyrir undir Þórdunu og skulu fulltrúar hennar og nemendaráðs ásamt félagsmálafulltrúum sitja fund a.m.k. einu sinni í mánuði. Öll fjáröflun þarf að lúta samþykki nemendaráðs, félagsmálafulltrúa og stjórnar skólans.

4.10. Nýnemaráð er skipað í það minnsta þremur nýnemum sem kjörnir eru til starfans á nýnemafundi í byrjun skólaársins. Stjórn nemendaráðs útnefnir formann nefndarinnar sem jafnframt er tengiliður við nemendaráð

4.10.1. Nýnemaráð er kjörið til þess að gæta hagsmuna nýnema og til þess að liðka samskipti nýnema við nemendaráð og hin ýmsu félög sem undir Þórdunu heyra.

4.11. Ef meira en helmingur stjórnarmeðlima einhvers félags eða nefndar hafa sagt upp störfum þá skal nemendaráð beitar sér tafarlaust fyrir endurnýjun í viðkomandi félagi, og skal lágmarksfjölda stjórnarmeðlima náð innan viku frá afsögn fyrri meðlima.

5. Félagsmálafulltrúar

5.1. Félagsmálafulltrúar eru tveir starfsmenn skólans, ráðnir af stjórnendum skólans, til þess að koma að málefnum Þórdunu og vera tengiliðir félagsins við yfirstjórn skólans og aðra starfsmenn hans.

5.2. Hlutverk félagsmálafulltrúa er að sitja alla fundi stjórnar Þórdunu, auk funda með yfirstjórn skólans, og fylgjast með framgangi mála innan félagsins. Félagsmálafulltrúar, í samráði við gjaldkera og formann nemendaráðs, hafa yfirumsjón með bókhaldi. Félagsmálafulltrúar fylgja því eftir að öll starfsemi innan félagsins lúti að lögum og reglum skólans, sem og lögum félagsins.

6. KLÚBBAR

6.1. Klúbbum, ráðum og nefndum innan skólans er óheimilt að stofna til skuldbindinga í nafni Þórdunu nema með samþykki nemendaráðs.

6.2. Klúbbar skulu hafa virka stjórn, skipaða minnst þremur (3) nemendum og skal formaður klúbbsins jafnframt vera ábyrgðarmaður og er hann ábyrgur fyrir því sem klúbburinn tekur sér fyrir hendur.

6.3. Klúbbar skulu starfa sjálfstætt, en lúta yfirstjórn nemendaráðs. Allar fjárskuldbindingar og stærri ákvörðunartökur eru háðar samþykki nemendaráðs.

7. Fundir á vegum Þórdunu

7.1. Aðalfundur.

7.1.1. Aðalfundur skal haldinn í apríl ár hvert. Boða skal til fundarins með minnst viku fyrirvara á heimasíðu VMA eða með öðrum óyggjandi hætti.

7.1.2. Aðalfundur telst löglegur ef rétt er til hans boðað og á hann mæta minnst 10% meðlima Þórdunu. Ef fundurinn er ekki lögmætur skal boða framhaldsfund innan tveggja vikna og telst hann löglegur ef rétt er til hans boðað.

7.1.3. Félagsmálafulltrúar geta boðað til aðalfundar sjái þeir ástæðu til og skal fundarboð berast með minnst viku fyrirvara.

7.1.4. Rétt til fundarsetu og tillögurétt hafa allir félagar Þórdunu og þeir einir hafa atkvæðisrétt. Þá hafa félagsmálafulltrúar og þeir sem nemendaráð býður sérstaklega að sitja fundinn tillögurétt

7.1.5. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
i. Fundarsetning.
ii. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
iii. Ritari leggur fram árskýrslu félagsins.
iv. Gjaldkeri leggur fram ársreikninga félagsins, samþykkta af gjaldkerum skólans.
v. Umræður og afgreiðsla ársskýrslu og ársreikninga.
vi. Lagabreytingar.
vii. Önnur mál.
viii. Fundarslit.

7.2. Nemendaráðsfundir

7.2.1. Nemendaráð skal funda ásamt félagsmálafulltrúum a.m.k. einu sinni í viku og skal formaður boða til fundarins með óyggjandi hætti minnst tveimur dögum fyrir áætlaðan fundartíma.

7.2.2. Atkvæðisrétt á nemendaráðsfundum hafa kosnir fulltrúar nemendaráðs. Félagsmálafulltrúar hafa tillögurétt á fundunum, nema þegar um fjárveitingar er að ræða, þá öðlast þeir atkvæðisrétt.

7.2.3. Á nemendaráðsfundum skal fjallað um hagsmunamál nemenda og tillögur og ber nemendaráði að fara yfir öll mál félagsmann sem þeim berast, hafi tillögur borist þremur dögum fyrir áætlaðan fundartíma.

7.2.4. Félagsmenn Þórdunu geta setið fundi nemendaráðs hafi þeir fengið til þess umboð nemendaráðs.

7.2.5. Allar ákvarðanir nemendaráðsfundar skal bera undir atkvæði og skoðast þær aðeins samþykktar ef þær hljóta meirihluta atkvæða.

7.2.6. Nemendaráðsfundur telst þá aðeins gildur ef meirihluti nemendaráðs Þórdunu situr fundinn.

7.3. Fundur með skólameistara

7.3.1. Nemendaráð skal funda með skólameistara, eða fulltrúa hans, a.m.k. einu sinni í mánuði. Getur þessi fundur einnig fallið undir hefðbundna nemendaráðsfundi Þórdunu. Þar skal skólameistara, eða fulltrúa hans, kynnt þau málefni sem efst eru á baugi og þau mál rædd sem báðum aðilum þykir þörf á. Málefnalisti skal liggja fyrir tveimur dögum áður en til fundar kemur.

8. KOSNINGAR

8.1. Kosið er í embætti nemendafélagsins - sem eru eftirfarandi: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari, skemmtanastjóri, eignastjóri og tveir hagsmunafulltrúar - í almennum kosningum sem skulu haldnar í síðasta lagi mánuði fyrir kennslulok, þannig að nægur tími gefist fyrir fráfarandi nemendaráð til starfa með nýju nemendaráði.

8.2. Kjörgengi hafa allir Þórdunufélagar sem náð hafa sjálfræðisaldri og geta sínt frá á hreint sakavottorð sbr. gr. 3.5., kosningarétt hafa allir Þórdunufélagar.

8.3. Til að kosning sé gild skulu að minnsta kosti 30% Þórdunu-félaga greiða atkvæði. Ef ske kynni að aðeins einn frambjóðandi bjóði sig fram í tiltekið embætti verður hann að hljóta að minnsta kosti 50% greiddra atkvæða.

8.4. Nemendaráð skipar 5 manna kjörstjórn í upphafi vorannar, í síðasta lagi fimm vikum fyrir kjördag. Kjörstjórn setur sér starfsreglur og sér um framkvæmd kosninganna.

8.4.1. Samþykki félagsmálafulltrúa þarf fyrir skipan kjörstjórnar.

8.4.2. Meðlimir í kjörstjórn eru ekki kjörgengir í embætti.

8.5. Framboð til nemendaráðs

8.5.1. Kjörstjórn auglýsi eftir framboðum eigi síðar en mánuði fyrir kosningar.

8.5.2. Kjörstjórn skal leitast við að frambjóðendur séu ekki færri en tveir í hvert embætti.

8.5.3. Þá skal og birta kosningalög opinberlega um leið og auglýst er eftir framboðum.

8.5.4. Frambjóðendur skulu hafa tilkynnt skriflega framboð sitt til kjörstjórnar eigi síðar en 7 dögum fyrir kjördag, ella telst framboð viðkomandi ógilt.

8.5.5. Sami aðili má ekki bjóða sig fram til eða gegna fleiri en einu embætti í senn innan nemendaráðs (sjá þó lið 3.4.2).

8.5.6. Þegar framboðsfrestur er útrunninn skal kjörstjórn boða til fundar með öllum frambjóðendum í síðasta lagi þremur dögum fyrir kosningar. Þar skal frambjóðendum bent á helstu atriði kosningalaga er varða áróður, kjördag, talningu atkvæða og skipan nýs nemendaráðs.

8.6. Kynning á framboðum

8.6.1. Frambjóðenda er heimilt að kynna framboð sitt, en ber að gæta fyllsta velsæmis. Kjörstjórn, nemendaráð og félagsmálafulltrúar áskilja sér rétt til að fjarlægja eða taka fyrir áróður sem þykir misbjóða þeim sem um skólann fara eða sem gengur á svig við lög og reglur skólans og Þórdunu.

8.6.2. Telji kjörstjórn eða félagsmálafulltrúar frambjóðanda af einhverjum orsökum vera vanhæfan til setu í nemendaráði ber þeim að leggja vantrauststillögu fyrir skólayfirvöld til samþykkis.

8.6.3. Frambjóðendum er óheimilt að nota aðstöðu og efni nemendaráðs til auglýsingagerðar eða áróðurs.

8.6.4. Nemendaráði er skylt að kynna öll framboð jafnt og skal slíkt gert á upplýsingatjaldi í Gryfjunni og/eða með framboðsfundi á vegum nemendaráðs á sama stað.

8.6.5. Kosningaáróður á kjördegi er óheimill. Allar auglýsingar skulu fjarlægðar áður en skóli hefst á kjördag.

8.7. Frambjóðendum, eða fulltrúum þeirra, er heimilt að vera við talningu atkvæða í samráði við kjörstjórn.

8.8. Nýtt nemendaráð skal hefja störf strax að kosningu lokinni og starfa í samvinnu við eldra nemendaráð til vors. Ákvarðanataka skal falin í hendur nýrri stjórn en eldri stjórn hafi atkvæðisrétt á nemendaráðsfundum fram að kennslulokum.

8.9. Takist ekki að skipa í öll embætti í nemendaráði í kosningum skal boða til kosninga viku seinna í viðkomandi embætti.

8.10. Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir í kosningum Þórdunu skal hlutkesti látið ráða um hver nær kosningu.

8.11. Ef auðir seðlar eru hlutfallslega fleiri en greidd atkvæði hæsta frambjóðanda nær hann ekki kjöri. Skal þá innan vikutíma auglýsa eftir nýjum frambjóðendum og halda í framhaldi af því nýjar kosningar. Ef einhver frambjóðandi nær enn ekki kjöri skal stjórn nemendaráðs skipa í stöðuna.

8.12. Nemendaráð skal birta niðurstöðu kosninga í Gryfjunni í síðasta lagi á hádegi degi eftir kosningar og á heimasíðu sinni strax í kjölfarið.

8.13. Brotthvarf ráða og nefnda eða einstakra meðlima.

8.13.1. Láti meðlimur nemendaráðs af störfum fyrir lok kjörtímabils síns, skal auglýsa eftir framboði og standa fyrir kosningum um viðkomandi embætti innan viku frá brotthvarfi viðkomandi meðlims. Komi ekki framboð í stöðu skal nemendaráð skipa í stöðuna.

8.13.2. Segi nemendaráð af sér fyrir lok kjörtímabils síns ber því að efna til kosninga áður en það lætur af störfum. Nemendaráð getur ekki látið af störfum fyrr en nýtt nemendaráð hefur verið kjörið.

9. Fjármál Þórdunu

9.1. Félagsgjöldum skal eingöngu varið til félagsstarfs á vegum nemenda skólans.

9.2. Ásamt félagsgjöldum skal allur ágóði af atburðum á vegum Þórdunu renna í nemendasjóð. Hér er þó undanskilinn ágóði af vinnu Ferðanefndar.

9.3. Allar tekjur og gjöld skulu fara um útgjaldareikning Þórdunu, sem er í umsjón gjaldkera og hann hefur aðgang að ásamt formanni. Hér eru þó undanskilin tekjur og gjöld vegna starfs Ferðanefndar.

9.4. Endurgreiðslur félagsgjalda eru eingöngu inntar af hendi í viku eftir að innheimtu þeirra líkur.

9.5. Allar fjárveitingar af reikningi Þórdunu, ef frá eru taldar greiðslur reikninga vegna starfsemi, skulu samþykktar á nemendaráðsfundi, og hafa félagsmálafulltrúar atkvæðisrétt í slíkum málum.

9.6. Nefndum, ráðum, félögum og klúbbum sem heyra undir Þórdunu er gert skylt að gera grófa fjárhagsáætlun vegna allra atburða og bera undir nemendaráð með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.

9.7. Ársreikningar félagsins skulu bornir undir félaga Þórdunu á aðalfundi til samþykkis.

9.8. Bókhald og reikninga Þórdunu ber að endurskoða árlega, skal það á ábyrgð fráfarandi stjórnar í lok skólaárs. Endurskoðuðu bókhaldi skal síðan skilað fyrir upphaf næsta skólaárs til nýs nemendaráðs.

10. UM LÖG FÉLAGSINS

10.1. Lögum félagsins má breyta á aðalfundi með 2/3 hluta atkvæða, enda hafi stjórn félagsins borist skrifleg tillaga um lagabreytinguna í síðasta lagi kl 16:00 daginn fyrir aðalfund.

10.2. Lagabreytingar eru á höndum nemendaráðs og skal það skipa fimm manna lagabreytinganefnd, en í henni mega aðeins setja meðlimir nefnda og ráða sem heyra undir Þórdunu og skal nemendaráð velja einhvern úr sínum röðum til formennsku í nefndinni. Lagabreytinganefnd skal síðan setja fram tillöguna á aðalfundi. Um lagabreytingar gildir að um þær skuli fjalla á lýðræðislegum grundvelli og af hlutleysi.

10.3. Nemendaráði er heimilt að setja reglugerðir í samræmi við þessi lög, en eingöngu á opnum fundum. Skulu slíkar reglugerðir kynntar á vef Þórdunu, www.thorduna.is

10.4. Nemendaráði ber að sjá til þess að lög félagsins séu ávallt í aðgengilegu formi fyrir félagsmenn.

10.5. Nemendaráð skal, ásamt félagsmálafulltrúum, hafa eftirlit með að þessum lögum sé framfylgt.

10.6. Nemendaráð hefur leyfi til að lagfæra stafsetninga- og málfræðivillur sem og villur í tilvísunum sem leynst geta í lögum þessum. Þess skal þó gætt að samþykkt merking greinanna haldi sér.

10.7 Með gildistöku þessara laga falla önnur lög og aðrar samþykktir Þórdunu úr gildi.

10.8. Lög þessi eru samþykkt á aðalfundi þann 22.04.2008 og öðlast þegar gildi.

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf