Þórduna | Nemendafélag VMA

Kosningar til stjórnar Þórdunu! Kosningar til stjórnar Þórdunu, nemendaráðs VMA, verða þann 15. apríl nk. Þórduna auglýsir hér með eftir framboðum í

Kosningar til stjórnar Þórdunu!

Kosningar til stjórnar Þórdunu, nemendaráðs VMA, verða þann 15. apríl nk.
Þórduna auglýsir hér með eftir framboðum í eftirfarandi stöður:
Formaður, Varaformaður, Gjaldkeri, Ritari, Eignastjóri, Skemmtanastjóri og Hagsmunaráð(x2)

Framboðum skal skilað í tölvupósti á netfangið hrabba@vma.is eða omar@vma.is
Í framboði þarf að koma fram nafn, símanúmer, kennitala, staða sem sóst er eftir auk annars sem við kann að eiga.

Frestur til að skila inn framboði er 26. mars.

Hér fyrir neðan má sjá greinar um kosningar úr lögum Þórdunu.
8. KOSNINGAR

8.1. Kosið er í embætti nemendafélagsins - sem eru eftirfarandi: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari, skemmtanastjóri, eignastjóri og tveir hagsmunafulltrúar - í almennum kosningum sem skulu haldnar í síðasta lagi mánuði fyrir kennslulok, þannig að nægur tími gefist fyrir fráfarandi nemendaráð til starfa með nýju nemendaráði.

8.2. Kjörgengi hafa allir Þórdunufélagar sem náð hafa sjálfræðisaldri og geta sínt frá á hreint sakavottorð sbr. gr. 3.5., kosningarétt hafa allir Þórdunufélagar.

8.3. Til að kosning sé gild skulu að minnsta kosti 30% Þórdunu-félaga greiða atkvæði. Ef ske kynni að aðeins einn frambjóðandi bjóði sig fram í tiltekið embætti verður hann að hljóta að minnsta kosti 50% greiddra atkvæða.

8.4. Nemendaráð skipar 5 manna kjörstjórn í upphafi vorannar, í síðasta lagi fimm vikum fyrir kjördag. Kjörstjórn setur sér starfsreglur og sér um framkvæmd kosninganna.

8.4.1. Samþykki félagsmálafulltrúa þarf fyrir skipan kjörstjórnar.

8.4.2. Meðlimir í kjörstjórn eru ekki kjörgengir í embætti.

8.5. Framboð til nemendaráðs

8.5.1. Kjörstjórn auglýsi eftir framboðum eigi síðar en mánuði fyrir kosningar.

8.5.2. Kjörstjórn skal leitast við að frambjóðendur séu ekki færri en tveir í hvert embætti.

8.5.3. Þá skal og birta kosningalög opinberlega um leið og auglýst er eftir framboðum.

8.5.4. Frambjóðendur skulu hafa tilkynnt skriflega framboð sitt til kjörstjórnar eigi síðar en 7 dögum fyrir kjördag, ella telst framboð viðkomandi ógilt.

8.5.5. Sami aðili má ekki bjóða sig fram til eða gegna fleiri en einu embætti í senn innan nemendaráðs (sjá þó lið 3.4.2).

8.5.6. Þegar framboðsfrestur er útrunninn skal kjörstjórn boða til fundar með öllum frambjóðendum í síðasta lagi þremur dögum fyrir kosningar. Þar skal frambjóðendum bent á helstu atriði kosningalaga er varða áróður, kjördag, talningu atkvæða og skipan nýs nemendaráðs.

8.6. Kynning á framboðum

8.6.1. Frambjóðenda er heimilt að kynna framboð sitt, en ber að gæta fyllsta velsæmis. Kjörstjórn, nemendaráð og félagsmálafulltrúar áskilja sér rétt til að fjarlægja eða taka fyrir áróður sem þykir misbjóða þeim sem um skólann fara eða sem gengur á svig við lög og reglur skólans og Þórdunu.

8.6.2. Telji kjörstjórn eða félagsmálafulltrúar frambjóðanda af einhverjum orsökum vera vanhæfan til setu í nemendaráði ber þeim að leggja vantrauststillögu fyrir skólayfirvöld til samþykkis.

8.6.3. Frambjóðendum er óheimilt að nota aðstöðu og efni nemendaráðs til auglýsingagerðar eða áróðurs.

8.6.4. Nemendaráði er skylt að kynna öll framboð jafnt og skal slíkt gert á upplýsingatjaldi í Gryfjunni og/eða með framboðsfundi á vegum nemendaráðs á sama stað.

8.6.5. Kosningaáróður á kjördegi er óheimill. Allar auglýsingar skulu fjarlægðar áður en skóli hefst á kjördag.

8.7. Frambjóðendum, eða fulltrúum þeirra, er heimilt að vera við talningu atkvæða í samráði við kjörstjórn.

8.8. Nýtt nemendaráð skal hefja störf strax að kosningu lokinni og starfa í samvinnu við eldra nemendaráð til vors. Ákvarðanataka skal falin í hendur nýrri stjórn en eldri stjórn hafi atkvæðisrétt á nemendaráðsfundum fram að kennslulokum.

8.9. Takist ekki að skipa í öll embætti í nemendaráði í kosningum skal boða til kosninga viku seinna í viðkomandi embætti.

8.10. Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir í kosningum Þórdunu skal hlutkesti látið ráða um hver nær kosningu.

8.11. Ef auðir seðlar eru hlutfallslega fleiri en greidd atkvæði hæsta frambjóðanda nær hann ekki kjöri. Skal þá innan vikutíma auglýsa eftir nýjum frambjóðendum og halda í framhaldi af því nýjar kosningar. Ef einhver frambjóðandi nær enn ekki kjöri skal stjórn nemendaráðs skipa í stöðuna.

8.12. Nemendaráð skal birta niðurstöðu kosninga í Gryfjunni í síðasta lagi á hádegi degi eftir kosningar og á heimasíðu sinni strax í kjölfarið.

8.13. Brotthvarf ráða og nefnda eða einstakra meðlima.

8.13.1. Láti meðlimur nemendaráðs af störfum fyrir lok kjörtímabils síns, skal auglýsa eftir framboði og standa fyrir kosningum um viðkomandi embætti innan viku frá brotthvarfi viðkomandi meðlims. Komi ekki framboð í stöðu skal nemendaráð skipa í stöðuna.

8.13.2. Segi nemendaráð af sér fyrir lok kjörtímabils síns ber því að efna til kosninga áður en það lætur af störfum. Nemendaráð getur ekki látið af störfum fyrr en nýtt nemendaráð hefur verið kjörið.


Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf