Þórduna | Nemendafélag VMA

Þórduna | Nemendafélag VMA

Tilkynningar

Ljósmyndaklúbburinn Linsan er kominn með nýja og stórglæsilega síðu sem hægt er að skoða hérna á thorduna síðunni í gegnum --> Félög --> Linsan ljósmyndaklúbbur. Við hverjum ykkur eindregið að kíkja!

- Hægt er að sækja FRÍ bensínkort inná Nemendaráðs skrifstofu. Innifalið í kortinu er:
5 kr/ltr afsláttur hjá Shell frá dæluverði *
3 kr/ltr afsláttur hjá Orkunni frá dæluverði **
10 kr/ltr upphafsafsláttur í 5 fyrstu skiptin
10 kr/ltr afsláttur á afmælisdögum
5 kr/ltr afsláttur á ofurdögum hjá Orkunni
30% afslátt af kaffi úr vélum hjá Select
15% afsláttur af smurþjónustu, smurolíu .
15% af völdum bílavörum.

Fréttir

ÁRSKORT Í BJARG

Loksins Loksins! 
Þeir sem skrifuðu undir samning við Bjarg, listinn er á leiðinni til þeirra og fólk má bara skella sér í ræktina á morgunn 3.maí og kaupa kortið sitt =D

Þökkum fyrir þáttökuna og vonum að þið njótið sumarsins

F.H Íþróttaráðs Guðný Jónsdóttir
GudnyJons91@gmail.com

Úrslit kosninga 2010

Kosið var til nemendaráðs í dag fyrir skólaárið 2010-2011

 

Alls greiddu 464 nemendur atkvæði og atkvæðin féllu þannig:

 Formaður

Arnór Ingi Hansen hlaut 73,5 % atkvæða

Pálmi Þorgeir Jóhannsson hlaut 23,3 % atkvæða

Auðir og ógildir seðlar voru 3,2 % atkvæða

 

Varaformaður

Darri Arnarson hlaut 94 % atkvæða

Auðir og ógildir voru 6 % atkvæða

Gjaldkeri

Jóhann Björgvin Elíasson hlaut 68,5 % atkvæða

Karólína Gústafsdóttir hlaut 25,7 % atkvæða

Auðir og ógildir voru 5,8 % atkvæða

                                                                  

Ritari

Guðný Jónsdóttir hlaut 53,5 % atkvæða

Ugla Stefanía Jónsdóttir hlaut 42,7 % atkvæða

Auðir og ógildir voru 3,9 % atkvæða

 

Skemmtanastjóri

Kristófer Knutsen hlaut 87,5 % atkvæða

Auðir og ógildir voru 12,5 % atkvæða

 

Eignastjóri

Grétar Bragi Hallgrímsson hlaut 56,3 % atkvæða

Þorsteinn Marinó Egilsson hlaut 25,9 % atkvæða

Merenía Kristín Hrafnkelsdóttir hlaut 14,2 % atkvæða

Auðir og ógildir voru 3,7 % atkvæða

 

Hagsmunaráð

Aron Heiðar Steinsson hlaut 71,6 % atkvæða

Ragnar Heiðar Sigtryggsson hlaut 61,2 % atkvæða

Dagný Hulda Valbergsdóttir hlaut 58,8 % atkvæða


     Nýtt nemendaráð skipa:

Formaður

Arnór Ingi Hansen

Varaformaður

Darri Arnarson

Gjaldkeri

Jóhann Björgvin Elíasson

Ritari

Guðný Jónsdóttir

Skemmtanastjóri

Kristófer Knutsen

Eignastjóri

Grétar Bragi Hallgrímsson

Hagsmunaráð

Aron Heiðar Steinsson

Ragnar Heiðar Sigtryggsson




Frambjóðendur til kosninga

Eftirtaldir bjóða sig fram til starfa í stjórn Þórdunu fyrir skólaárið 2010-2011. Frambjóðendur eru í stafrófsröð undir hverju embætti og í sviga má sjá braut viðkomandi frambjóðanda. Kosningar fara fram fimmtudaginn 15. apríl.

Formaður:
Arnór Ingi Hansen (vélstjórn)
Pálmi Þorgeir Jóhannsson (Rafiðn)


Varaformaður:
Darri Arnarson (Náttúrufr.)

Gjaldkeri:
Jóhann Björgvin Elíasson (Húsasmíði)
Karolína Gústafsdóttir (Viðsk.)

Ritari:
Guðný Jónsdóttir (Náttúrufr.)
Ugla Stefanía Jónsdóttir (Náttúrufr.)

Eignastjóri:
Grétar Bragi Hallgrímsson (Îþr.br.)
Merenia Kristín Hrafnkelsdóttir (Málmiðn)
Þorsteinn Marinó Egilsson (Félagsfr.)

Skemmtanastjóri:
Kristófer Knutsen (Náttúrufr.)

Hagsmunaráð (2 fulltrúar kjörnir):
Aron Heiðar Steinsson (Rafiðn)
Dagný Hulda Valbergsdóttir (Félagsfr.)
Ragnar Heiðar Sigtryggsson (Viðsk.)

Kosningar til stjórnar Þórdunu!

Kosningar til stjórnar Þórdunu, nemendaráðs VMA, verða þann 15. apríl nk.
Þórduna auglýsir hér með eftir framboðum í eftirfarandi stöður:
Formaður, Varaformaður, Gjaldkeri, Ritari, Eignastjóri, Skemmtanastjóri og Hagsmunaráð(x2)

Framboðum skal skilað í tölvupósti á netfangið hrabba@vma.is eða omar@vma.is
Í framboði þarf að koma fram nafn, símanúmer, kennitala, staða sem sóst er eftir auk annars sem við kann að eiga.

Frestur til að skila inn framboði er 26. mars.

Hér fyrir neðan má sjá greinar um kosningar úr lögum Þórdunu.
8. KOSNINGAR

8.1. Kosið er í embætti nemendafélagsins - sem eru eftirfarandi: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari, skemmtanastjóri, eignastjóri og tveir hagsmunafulltrúar - í almennum kosningum sem skulu haldnar í síðasta lagi mánuði fyrir kennslulok, þannig að nægur tími gefist fyrir fráfarandi nemendaráð til starfa með nýju nemendaráði.

8.2. Kjörgengi hafa allir Þórdunufélagar sem náð hafa sjálfræðisaldri og geta sínt frá á hreint sakavottorð sbr. gr. 3.5., kosningarétt hafa allir Þórdunufélagar.

8.3. Til að kosning sé gild skulu að minnsta kosti 30% Þórdunu-félaga greiða atkvæði. Ef ske kynni að aðeins einn frambjóðandi bjóði sig fram í tiltekið embætti verður hann að hljóta að minnsta kosti 50% greiddra atkvæða.

8.4. Nemendaráð skipar 5 manna kjörstjórn í upphafi vorannar, í síðasta lagi fimm vikum fyrir kjördag. Kjörstjórn setur sér starfsreglur og sér um framkvæmd kosninganna.

8.4.1. Samþykki félagsmálafulltrúa þarf fyrir skipan kjörstjórnar.

8.4.2. Meðlimir í kjörstjórn eru ekki kjörgengir í embætti.

8.5. Framboð til nemendaráðs

8.5.1. Kjörstjórn auglýsi eftir framboðum eigi síðar en mánuði fyrir kosningar.

8.5.2. Kjörstjórn skal leitast við að frambjóðendur séu ekki færri en tveir í hvert embætti.

8.5.3. Þá skal og birta kosningalög opinberlega um leið og auglýst er eftir framboðum.

8.5.4. Frambjóðendur skulu hafa tilkynnt skriflega framboð sitt til kjörstjórnar eigi síðar en 7 dögum fyrir kjördag, ella telst framboð viðkomandi ógilt.

8.5.5. Sami aðili má ekki bjóða sig fram til eða gegna fleiri en einu embætti í senn innan nemendaráðs (sjá þó lið 3.4.2).

8.5.6. Þegar framboðsfrestur er útrunninn skal kjörstjórn boða til fundar með öllum frambjóðendum í síðasta lagi þremur dögum fyrir kosningar. Þar skal frambjóðendum bent á helstu atriði kosningalaga er varða áróður, kjördag, talningu atkvæða og skipan nýs nemendaráðs.

8.6. Kynning á framboðum

8.6.1. Frambjóðenda er heimilt að kynna framboð sitt, en ber að gæta fyllsta velsæmis. Kjörstjórn, nemendaráð og félagsmálafulltrúar áskilja sér rétt til að fjarlægja eða taka fyrir áróður sem þykir misbjóða þeim sem um skólann fara eða sem gengur á svig við lög og reglur skólans og Þórdunu.

8.6.2. Telji kjörstjórn eða félagsmálafulltrúar frambjóðanda af einhverjum orsökum vera vanhæfan til setu í nemendaráði ber þeim að leggja vantrauststillögu fyrir skólayfirvöld til samþykkis.

8.6.3. Frambjóðendum er óheimilt að nota aðstöðu og efni nemendaráðs til auglýsingagerðar eða áróðurs.

8.6.4. Nemendaráði er skylt að kynna öll framboð jafnt og skal slíkt gert á upplýsingatjaldi í Gryfjunni og/eða með framboðsfundi á vegum nemendaráðs á sama stað.

8.6.5. Kosningaáróður á kjördegi er óheimill. Allar auglýsingar skulu fjarlægðar áður en skóli hefst á kjördag.

8.7. Frambjóðendum, eða fulltrúum þeirra, er heimilt að vera við talningu atkvæða í samráði við kjörstjórn.

8.8. Nýtt nemendaráð skal hefja störf strax að kosningu lokinni og starfa í samvinnu við eldra nemendaráð til vors. Ákvarðanataka skal falin í hendur nýrri stjórn en eldri stjórn hafi atkvæðisrétt á nemendaráðsfundum fram að kennslulokum.

8.9. Takist ekki að skipa í öll embætti í nemendaráði í kosningum skal boða til kosninga viku seinna í viðkomandi embætti.

8.10. Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir í kosningum Þórdunu skal hlutkesti látið ráða um hver nær kosningu.

8.11. Ef auðir seðlar eru hlutfallslega fleiri en greidd atkvæði hæsta frambjóðanda nær hann ekki kjöri. Skal þá innan vikutíma auglýsa eftir nýjum frambjóðendum og halda í framhaldi af því nýjar kosningar. Ef einhver frambjóðandi nær enn ekki kjöri skal stjórn nemendaráðs skipa í stöðuna.

8.12. Nemendaráð skal birta niðurstöðu kosninga í Gryfjunni í síðasta lagi á hádegi degi eftir kosningar og á heimasíðu sinni strax í kjölfarið.

8.13. Brotthvarf ráða og nefnda eða einstakra meðlima.

8.13.1. Láti meðlimur nemendaráðs af störfum fyrir lok kjörtímabils síns, skal auglýsa eftir framboði og standa fyrir kosningum um viðkomandi embætti innan viku frá brotthvarfi viðkomandi meðlims. Komi ekki framboð í stöðu skal nemendaráð skipa í stöðuna.

8.13.2. Segi nemendaráð af sér fyrir lok kjörtímabils síns ber því að efna til kosninga áður en það lætur af störfum. Nemendaráð getur ekki látið af störfum fyrr en nýtt nemendaráð hefur verið kjörið.

Árskort- líkamsræktarstöðin Bjarg- 50% afsláttur

Bjarg árskort- 50% afsláttur-VMA

Fyrir alla nemendur, kennara og starfsfólk skólans

Jæja þá erum við búin að fá tilboð frá Líkamsræktarstöðinni Bjargi. Árskortið hjá þeim er á 50% afslætti og er þá á 31.000 kr.  Tilboð þetta gildir til 1. maí 2010.

Tilboð þetta er háð því að 100 manns skrái sig, látið verðu vita á heimasíðu Þórdunu  þegar þeim fjölda hefur verið náð. www.thorduna.is

 

Það sem er innifalið í árskortinu er t.d

-Frítt í sund hjá Sundlaug Akureyrar
-Frjáls aðgangur í tækjasal, ásamt leiðsögn og kennslu á æfingaáætlanir
-vigtun, fitumælingar og þolpróf
-aðgangur í alla opna tíma
-Heitir pottar, gufuböð og glæsileg útiaðstaða
-Frí barnagæsla í 6 daga vikunnar
-Frír aðgangur á 10 öðrum stöðvum:

Hress í Hafnafirði, Árbæjarþreki og Veggsporti í Reykjavík,
Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar,
sundlaug Dalvíkur,
Þreksporti á Sauðárkróki,
Lífstíl í Keflavík,
Toppsporti á Selfossi,
Töff heilsurækt á Húsavík og
Hressó í Vestmannaeyjum.

Ásamt fleiru sem má sjá á heimasíðu Bjargs www.bjarg.is

Skráningablöð má finna inná Nemendaráðsskrifstofu og í afgreiðslunni.

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir: GudnyJons91@gmail.com

 


Tauþrykk

Rakel Snorradóttir sá um kennslu tauþrykks á opnum dögum. Lesa meira

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf